Fréttir
15.09.2023 Man einhver eftir Guelbenzu Evo?
 
Bodegas Guelbenzu var ein aðalástæðan fyrir stofnun Bers á sínum tíma [1999!]. Evo var valið eitt af beztu vínum ársins 1998 á Spáni skv. Guía de Vinos Gourmets.


Eftir áratuga dygga þjónustu hætti Evo í sölu hjá Vínbúðunum í fyrra. En Ber þrjózkast við, sótti um að nýju og Evo er nýkominn aftur í Reynslusölu. Seldist sums staðar upp en fæst nú í öllum Reynslubúðunum svo kölluðu: Álfrúnu í Hafnarfirði, Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi. Árgerð 2018 þykir vel heppnuð.


 Veldu síðu: <<  Til baka  1 2 3 4 5 6 7 8 9  Næsta síða  >>