| Viñas del Vero Chardonnay, sem hefur ekki verið fáanlegt hér á landi um skeið, er nú aftur komið á hillur Vínbúðanna. Þetta vín var í fyrstu sendingu sem kom til Bers og byrjaði í sölu haustið 1999 ásamt Gewürztraminer, Cabernet Sauvignon, Merlot og fljótlega bættist Val de Vos við.
Endurkoma Viñas del Vero Chardonnay er örugglega fagnaðarefni þeim sem vilja lítið eikaðan steinefnaríkan Chardonnay. Sumir telja Somontano eitt efnilegasta hvítvínshérað Spánar.
Eins og áður er fram komið valdi Iberia, þjóðarflugfélag Spánar, Viñas del Vero Chardonnay sem húsvín á viðskiptafarrými sínu.
|