Perelada Seco
Lýsing: Eðalfreyðivín frá Castillo Perelada, sem nýtur mikillar virðingar á Spáni. Í konunglegu brúðkaupi krónprins Spánar var boðið upp á bleika freyðivínið Cava Rosado frá Castillo Perelada.

Þetta hálfþurra freyðivín er gert úr hinum klassísku Cava-berjum: Macabeo, Xarel·lo og Parellada. Seinni gerjun gerist í flöskunni eins og hjá kampavíni. Vínið er geymt í 12 mánuði áður en það fer á markað.
Fölgult með mikilli smágerðri froðu.
Fíngerð blómaangan með votti af þroska.
Ferskt í bragði, alllangt og í góðu jafnvægi.

Upplagt í brúðkaups- og útskriftarveizlur vegna þess að vínið er hvorki of súrt né of sætt og ætti því að henta öllum, kerlingum og körlum.

Vara Bers: CP02
Framleiđandi: Castillo Perelada
Ár:
Áfengismagn: 11,5 %
Lítrar: 0,75
Verđ ÁTVR: 990
Vnr ÁTVR:
Annað:
Til baka