Perelada Seco og Champagne Jacquesson Cuvée 730
Lýsing: Vín desember eru tvö að þessu sinni, bæði gerð skv. Kampavínskri hefð þannig að loftbólurnar myndast við gerjun í flöskunni.

Perelada Seco er eðalfreyðivín en Castillo Perelada nýtur mikillar virðingar á Spáni. Í konunglegu brúðkaupi krónprins Spánar var boðið upp á bleika freyðivínið Cava Rosado frá Castillo Perelada.
Þetta hálfþurra freyðivín er gert úr hinum klassísku Cava-berjum: Macabeo, Xarel·lo og Parellada. Seinni gerjun gerist í flöskunni eins og hjá kampavíni. Vínið er geymt í 12 mánuði áður en það fer á markað.
Fölgult með mikilli smágerðri froðu.
Fíngerð blómaangan með votti af þroska.
Ferskt í bragði, alllangt og í góðu jafnvægi.

Jacquesson Cuvée 730 er nýtt hugtak í kampavínsgerð, e.k. næstum árgangskampavín. Vínið er gert samkvæmt slagorðinu "Snilld umfram stöðugleika" (e. Excellence before consistency), sem táknar að eiginleikar hvers árgangs fá að njóta sín.

Vara Bers: CP02
Framleiđandi: Castillo Perelada
Ár:
Áfengismagn: 11,5 %
Lítrar: 0,75
Verđ ÁTVR: Seco 990 á hátíðatilboði / Cuvée 730 2.980
Vnr ÁTVR:
Annað: Eðalfordrykkir og mjög góð matarvín með fiskréttum, s.s. Sushi og fiskisúpum, og ljósu kjöti.
Til baka