Hécula
Lýsing: Dökkt öflugt Monastrell vín frá Yecla á Suð-Austur Spáni. Robert Parker gaf 2000 árgangi 92/100 í einkunn, 2001 91/100, 2002 og 2003 90/100 og játar í riti sínu, Wine Advocate, að hann hafi aldrei gefið jafn ódýru víni jafn háa einkunn.
Vínið stendur nú loksins undir þeim væntingum sem slík einkunnagjöf skapar. Nú hefur það opnazt með ilmi af grilluðu kjöti, dökkum berjum og pipar. Minnir því óneitanlega á gott Rónarvín, s.s. Chateauneuf du Pape, en Monastrell (fr. Mourvedre) er einmitt ein af Rónarþrúgunum.
2006 ilmar af svörtum kirsjuberjum, greni og kryddi. Það er þétt undir tönn, mjög ávaxtaríkt, bragðmikið með talsverðu kryddi, pipar, negli (þgf. negull) og rúsínu- og döðlukeim í alllöngu eftirbragði.
Þetta er nördavín, sem loksins er að verða aðgengilegt hinum almenna óinnvígða og ómúraða borgara.
Hentar með alls konar grillkjöti, sem má vel vera talsvert kryddað.

Vara Bers: CAST1306
Framleiđandi: Bodegas Castaño
Ár: 2006
Áfengismagn: 14 %
Lítrar: 0.75
Verđ ÁTVR: 1.970
Vnr ÁTVR: 08593 Kjarni
Annað:
Til baka