Dehesa La Granja
Lýsing: Ný framleiðsla Fernandez-fjölskyldunnar vestur af Ribera del Duero, nærri Zamora niður með fljótinu Duero.
Dökkfjólublátt, sterkur ilmur af dökkum berjum, kókos, jarðvegi og grænum laufum. Bragðmikið, kjöt, mynta og næstum sætur ávöxtur. Langt, þétt og bragðgott.

Dehesa La Granja er gert úr 100% Tempranillo, höfuðþrúgu Spánar, og geymt í tvö ár í amerískri eik.
Leiðbeiningar Alejandrós:
Þetta er holdmikið vín með mjög mildum tannínum og miklum krafti. Þar sem vínið er ekki síað áður en það fer í flöskur, mælum við með því að víninu sé umhellt.
Vara Bers: BAF2118
Framleiđandi: Bodegas Alejandro Fernández
Ár: 2018
Áfengismagn: 13,5 %
Lítrar: 0,75
Verđ ÁTVR: 3333
Vnr ÁTVR: 10098
Annað: Lamb, ostar, svín
Til baka