Fréttir
01.09.2003 Castaño Monastrell byrjar í reynslusölu ÁTVR
 
Eftir frábæra dóma vínpennans Robert Parker(90/100), og fleiri virtra smakkara, var ákveðið að bjóða upp á Castaño Monastrell til reynslu í Heiðrúnu og Kringlunni.

Monastrell(M) er aðalrauðvínsþrúga héraðanna Jumilla og Yecla á suðaustur Spáni. Vín frá þessu svæði þykja nýjaheimsleg, dökk, ávaxtarík og kröftug.

Þrúgan Monastrell, sem er vandmeðfarin, kallast Mourvedre á frönsku og er eitt reginber suðurhluta Rónardalsins. Þótt oftast sé M notuð til blöndunar og jafnan í minnihluta er hún svipmikil og er oft bæði nef og tennur Chateauneuf du Pape vína, jafnvel þó hún sé aðeins um 20-30% í bland við Grenache, Syrah o.fl.

GSM blandan(ekki símarnir), sem vex nú fiskur um hrygg í Ástralíu, er einmitt sett saman úr þessum Rónarþrúgum, Grenache, Shiraz(svo) og Mourvedre.

Castaño Monastrell 2002 er dökkrauðblátt, ilmar af kirsu- og hindberjum auk B-vítamíns og tóbaks. Bragðið er þétt, munnfylli af dökkum berjum og mjúkum tannínum. Langt og bragðgott.


 Veldu síðu: <<  Til baka  93 94 95 96 97 98 99  Næsta síða  >>