Fréttir
26.08.2003 Ber fær umboð fyrir frábært kampavín, Champagne Jacquesson
 
Nýlega hlotnaðist Beri sá heiður að gæta hagsmuna hins magnaða kampavínsframleiðanda Champagne Jacquesson hér á Íslandi.

Champagne Jacquesson er hátt skrifað í heimalandinu, þykir í flokki þeirra 3 beztu.

Þetta er lítið fjölskyldufyrirtæki, fær megnið af sínum þrúgum, Pinot Noir, Pinot Meunier og Chardonnay, úr eigin víngörðum, sem er sjaldgæft í Kampavínshéraðinu. Klassískar aðferðir eru notaðar við víngerðina en vínin þykja vönduð, fínleg, mjúk og afar bragðgóð.

Til að byrja með verður boðið upp á fjölárgangavínin Brut Perfection og Brut Perfection Rosé (ekta í brúðkaup) í sérverzlunum ÁTVR.

Árgangsvínin Grand Vin Signature og sérgarðsvínið Avize Grand Cru verða fáanleg gegnum sérpöntun sem og tilkomumiklar stórar flöskur s.s. Magnum (fínar með Formúlunni).

Ekki verður boðið upp á Jacquesson í fernum.



 Veldu síðu: <<  Til baka  94 95 96 97 98 99